![Stálu munum að verðmæti á þriðju milljón króna Stálu munum að verðmæti á þriðju milljón króna](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla3-4.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Brotist var inn í sumarhús og vélaskemmu í Árborg í liðinni viku og þaðan stolið skotvopni og miklu af skotfærum, verkfærum, húsmunum, fatnaði og reiðtygjum. Áætlað verðmæti þessara muna sé á þriðju milljón króna.
Megnið af þýfinu er fundið og í tengslum við það voru þrír aðilar handteknir með aðstoð sérsveitar og samningateymis Ríkislögreglustjóra í gær. Vegna þess máls er nú unnið að húsleitum á handtökustað viðkomandi og einnig á öðrum stöðum sem taldir eru tengjast meintum brotamönnum.
Grunur leikur á að aðilar þessir tengjist fleiri þjófnaðarmálum liðinna vikna. Skýrslur verða teknar af viðkomandi, eftir því sem húsleitum vindur fram, þegar kemur fram á daginn en ekkert þeirra var í ástandi til skýrslugjafar í gærkvöldi eða nótt.
Úr dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.