Eldur kom upp í parhúsi á Selfossi á sjöunda tímanum í gærkvöldi og voru slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu á Selfossi boðaðir á vettvang. Eldurinn hafði kviknað í þurrkara í annarri íbúðinni en húsráðendum hafði tekist að ráða niðurlögum eldsins með slökkvitæki áður en slökkviliðsmenn komu á vettvang. Á facebook-síðu BÁ kemur fram að talsvert hafi verið af reyk og sóti í íbúðinni og aðstoðuðu slökkviliðsmenn húsráðendur við að reykræsta.
Eldur í parhúsi á Selfossi í gærkvöldi
![bruni_selfossi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/10/bruni_selfossi.jpg?resize=843%2C468&ssl=1)