Laugardaginn 5. apríl frá kl. 13-15 opnar Katrín Katrínardóttir myndlistarsýningu í Gallery Listaseli.
Katrín er fædd og uppalin í smáíbúðaverfinu í Reykjavík. Í dag býr hún á Selfossi og þar hefur hún sína vinnustofu.
Hún sækir innblástur sinn í mannlegar tilfinningar og birtingarmyndir þeirra og er það helsti mótunarþáttur listar hennar. Hún notar eingöngu olíumálningu á striga en þar notar hún bæði pensla og spaða.
Katrín er í mastersnámi í Listaháskóla Íslands í „List og velferð“ en á að baki farsælan feril sem leikskólakennari, klínískur félagsráðgjafi og fjölskyldumeðferðafræðingur. Þá hefur Katrín sótt nokkur master class-námskeið hjá Bjarna Sigurbjörnssyni listmálara í gegnum tíðina.
Katrín hefur haldið nokkrar sýningar og heildarfjöldi gesta hleypur á hundruðum. Katrín mun auk þessarar sýningar einnig sýna í Reykjavík í maí.