7.9 C
Selfoss

Selfossveitur semja um aukin jarðhitaréttindi

Vinsælast

Selfossveitur hafa samið við eigendur jarðarinnar Hallanda í Flóahreppi um einkarétt til jarðhitarannsókna, borunar eftir jarðhita og til virkjunar og hagnýtingar á jarðhita í landi Hallanda.

Sveitarfélagið Árborg greinir frá þessu á síðu sinni og segir að það hafi verið í forgangi sveitarfélagsin sl. ár að tryggja framboð á grunninnviðum líkt og heitu vatni.

Samningurinn tryggir Selfossveitum svæði til áframhaldandi jarðhitaleitar og mögulegrar virkjunar á heitu vatni. Svæðið sem um ræðir er austan við Selfoss og liggur að landi Stóra Ármóts. Selfossveitur hafa leitað að og virkt heitt vatn á þessu svæði undanfarna áratugi.

“Það eru spennandi tímar næstu árin í Sveitarfélaginu Árborg og miklar áætlanir um uppbyggingu. Þessi samningur tryggir Selfossveitum svæði til jarðhitaleitar en áfram verður unnið að samningum um fleiri svæði, enda mikilvægt að horfa til langs tíma við uppbyggingu innviða samfélagsins“, sagði Bragi Bjarnason, bæjarstjóri af þessu tilefni.

Ljósmynd: arborg.is.

Við undirritunina voru Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs og eigna- og veitunefndar, Sigurður Þór Haraldsson, fráfarandi veitustjóri Selfossveitna, Bragi Bjarnason, bæjarstjóri ásamt þeim Ann Gunnillu Westerberg og Rúnari Þór Steingrímssyni, landeigendum Hallanda.

Nýjar fréttir