Skóflustunga að nýju pósthúsi á Selfossi var tekin föstudaginn 6. október sl. Nýja pósthúsið mun sinna allri þjónustu Póstsins á svæðinu og verður staðsett við Larsenstræti 1, rétt hjá Bónus og BYKO.
Pósthúsið verður á einni hæð og stærð þess verður rúmir 650 fermetrar. Verktakafyrirtækið Vörðufell mun sjá um framkvæmdir, en fyrirtækið átti lægsta tilboð í verkið 284,4 milljónir króna. Fyrirhuguð verklok eru 30. október 2018.