5 C
Selfoss

Styrmir Jökull kjörinn í stjórn VR

Vinsælast

Kosning til formanns og stjórnar VR fór fram dagana 6. – 13. mars sl. Atkvæði voru 9.581 en á kjörskrá eru 40.117 VR-félagar. Kosningaþátttaka var því 23,88%.

Sitjandi formaður, Halla Gunnarsdóttir, náði endurkjöri með 45,72% atkvæða. Nokkrir Sunnlendingar voru í framboði til stjórnar VR. Voru það Birgitta Ragnarsdóttir, Maria Araceli og Styrmir Jökull Einarsson.

Styrmir Jökull náði kjöri í stjórn með 1927 atkvæði. Birgitta var kjörin í 2. sæti varastjórnar með 2169 atkvæði og Maria var tveimur sætum frá varastjórn með 2065 atkvæði. Raðast sætin svona vegna þess að lögbundin kynjaflétta er í kjöri til stjórnar VR.

Styrmir er fæddur 21. ágúst 2003 og starfar sem verslunarstjóri í Bónus í Garðabæ, en hann hefur eingöngu unnið í Bónus síðan hann byrjaði á vinnumarkaði 14 ára gamall. Samhliða vinnunni lauk hann stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2022.

Hann segir reynslu sína af félagsstörfum vera takmarkaða en að hann hafi öðlast dýrmæta innsýn í íslenskan vinnumarkað í gegnum starfið sitt.

„Ég hóf störf hjá Bónus aðeins 14 ára og varð verslunarstjóri 18 ára. Sú reynsla hefur kennt mér mikilvægi góðra starfskjara, skipulags og ábyrgðar. Ég hef séð hvernig ákvarðanir um laun og vinnuskilyrði hafa bein áhrif á daglegt líf starfsfólks. Sem stjórnandi hef ég lært að hlusta á ólíkar raddir og vinna að lausnum sem nýtast öllum,“ segir Styrmir á síðu VR.

Styrmir er með skýrar áherslur í stjórn félagsins þar sem hann vill að VR einblíni á grunngildi sín og vinni markvisst að því að bæta lífskjör allra félagsmanna.

„Félagið á að tryggja að kjaraviðræður skili fyrst og fremst hærri launum, betri starfskjörum og auknu starfsöryggi fyrir alla. Áherslan ætti að vera á raunverulegar umbætur sem gagnast sem flestum félagsmönnum í daglegu lífi, svo félagið haldi áfram að vera öflug rödd launafólks,“ segir Styrmir.

Styrmir segir VR eiga að vera skýrt og kraftmikið í sínum markmiðum, með stefnu sem tryggir að félagið vinni að hagsmunum allra þeirra sem treysta á það.

„Sterkt stéttarfélag á að sameina félagsmenn, standa vörð um réttindi þeirra og tryggja að rödd þeirra heyrist. Þannig náum við að fá fleiri með okkur í baráttuna, sérstaklega þá sem yngri eru, sem þurfa sterkari rödd og meira vægi innan félagsins,“ segir hann að lokum.

Nýjar fréttir