![Bóndi velti fjórhjóli er hann sveigði fram hjá kú Bóndi velti fjórhjóli er hann sveigði fram hjá kú](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla3-4.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Bóndi í Vestur-Skaftafellssýslu slasaðist við akstur fjórhjóls á túni en hjólið valt þegar hann sveigði frá kú sem gekk í veg fyrir hann. Meiðsl hans eru ekki talin alvarleg.
Þrjú slys voru tilkynnt til lögreglu í vikunni. Í einu tilfellinu rákust speglar bifreiða sem mættust saman og brotnaði hliðarrúða í annarri bifreiðinni. Slysið varð á Suðurlandsvegi við Keldunúp og fengu bæði ökumaður og farþegi aðskotahluti úr speglunum í andlit og háls.
Úr dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.