-3.2 C
Selfoss

Samband sunnlenskra kvenna afhenti gjafir til HSu

Vinsælast

Þann 14. janúar fór fram formleg afhending á tveimur gjöfum sem Samband sunnlenskra kvenna gaf til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Árnes- og Rangárvallasýslum á árinu 2024. Annars vegar var þetta gjöf til heilsugæslunnar á Selfossi, lífsstílsmóttöku, en þangað var gefið tækið Tanita Body Composition Analyzer sem mælir líkamssamsetningu; verð þessa tækis var 1.206.465 krónur. Þetta tæki nýtist til meðferðar þeirra sem eru yfir kjörþyngd, t.d. barna og ungmenna, fólks með sykursýki og einnig nýtist tækið fyrir fullorðið fólk á heilsugæslunni sem nýtir sér heilsueflandi móttöku vegna offitu og ýmissa tengdra sjúkdóma. Samskonar tæki var svo gefið til heilsugæslnanna í Rangárþingi á haustmánuðum og kostaði það 1.281.870 krónur. Alls gaf því Samband sunnlenskra kvenna Heilbrigðisstofnun Suðurlands gjafir fyrir 2.488.335 krónur á árinu 2024. Með því að þessi tæki séu komin á heilsugæslurnar í báðum sýslum, þá er þjónustan komin til fólksins og það þarf ekki að ferðast um langan veg. Samband sunnlenskra kvenna fjármagnar þessa styrki sína eingöngu með sölu gjafakorta, sem eru til sölu á heilsugæslustöðvunum í Árnes- og Rangárvallasýslum og einnig hjálpast allar félagskonurnar í kvenfélögunum 25 sem eru í SSK, að við að selja kortin, en seld eru 4 kort saman á 2.500 krónur. Einnig er hægt að hafa samband við stjórnarkonur í SSK ef ykkur vantar kort, eða við Sólveigu formann í síma 869 6534 eða á email ssk@kvenfelag.is.

Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir ritari SSK, Arndís Fannberg hjúkrunarfræðingur hjá heilsugæslunum í Rangárþingi tók við gjafabréfinu og Sólveig Þórðardóttir formaður SSK.
Ljósmynd: Aðsend.

Sjúkrahússjóður Sambands sunnlenskra kvenna var stofnaður árið 1952, þegar byrjað var að safna fyrir sjúkrahúsi með framlögum frá kvenfélögunum en frá árinu 1968 hefur fjár verið aflað með fjáröflunum og var byrjað að selja jólakort það ár sem hefur svo þróast yfir í gjafakort á síðustu árum. Þessar gjafir sem nú eru gefnar eru framlag allra 870 kvennanna sem eru félagskonur kvenfélaganna í Árnes- og Rangárvallasýslum til heilbrigðismála í umdæminu þeirra og vonast þær til að þessar gjafir nýtist vel og þakka þær af alhug öllum sem hafa veitt þessu verkefni stuðning.

Gjafakort sem sambandið hefur selt.
Ljósmynd: Aðsend.

Nýjar fréttir