Í byrjun síðasta mánaðar fluttu bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar í nýtt húsnæði að Breiðumörk 20 þar sem Arion banki var áður. Fasteignafélagið Reitir er eigandi húsnæðisins og sér um allar endurbætur þess en leigusamningur sem í gildi var milli Reita og Hveragerðisbæjar flyst yfir á nýtt húsnæði.
Undanfarið hafa starfsmenn verið að koma sér fyrir á báðum hæðum hússins og iðnaðarmenn eru enn að ganga frá veggjum, hurðum, skápum og fleiru. Skjalasafnið er smátt og smátt að flytja í stóran kjallara sem er undir öllu húsinu en þar er stefnt að því að hafa allt skjalasafn bæjarins á einum stað.
Með flutningnum hefur störfum í miðbæ Hveragerðisbæjar fjölgað til muna og meira líf færst í gamla miðbæinn sem bæjarbúar hafa kunnað vel að meta.