Ungmennafélag Selfoss stendur fyrir stofnfundi píludeildar félagsins fimmtudaginn 23. janúar næstkomandi. Fundurinn verður kl. 20:00 í félagsheimilinu Tíbrá að Engjavegi 50 á Selfossi. Píla hefur notið mikilla vinsælda á síðustu árum og þeim fjölgar sífellt sem hafa áhuga á að stunda hana.
Dagskrá fundarins:
Stofnun píludeildar Umf. Selfoss.
Kosning stjórnar skv. 13. grein laga Umf. Selfoss.
Önnur mál og umræður um starf og hlutverk deildarinnar.
Öll eru velkomin á fundinn.