Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi sunnudaginn 12. janúar. Allhvöss eða hvöss suðaustanátt verður og talsverð rigning. Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikil hálka getur myndast þar sem rignir á klakabunka eða þjappaðan snjó. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.