Tvær rútur, með um fimmta tug innanborðs, rákust saman við Hellu á gatnamótum við Gaddstaðaflatir. Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð.
Frá þessu er greint á RÚV.
Viðbragðaðilar eru á leið á vettvang. Að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar yfirlögregluþjóns á Suðurlandi er óljóst með slys á fólki að svo stöddu en virðast þau vera minnimáttar.
Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, er búið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Suðurlandsvegur er lokaður á meðan unnið er á vettvangi en umferð stýrt um hjáleið.