Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, hefur hafið göngu sína. Lið Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans að Laugarvatni kepptu í 1. umferð keppninnar í gærkvöld og unnu bæði lið sigur úr býtum og eru komin áfram í 16- liða úrslit.
FSu unnu öruggan sigur á móti Framhaldsskólanum á Laugum, 29-18. Lið FSu skipa Hrafnhildur Svava Sigurðardóttir, Valgeir Gestur Eysteinsson og Heimir Árni Erlendsson.
Menntaskólinn að Laugarvatni fagnaði naumum sigri á móti Menntaskólanum á Ísafirði, 14-12. Lið ML skipa þau Hjördís Katla Jónasdóttir, Ragnar Dagur Hjaltason og Guðjón Árnason.