3.9 C
Selfoss

„Það er líklegt að veðrið muni hafa áhrif á jólin á stórum hluta landsins þetta árið“

Vinsælast

Búast má við því að fólk þurfi að sætta sig við óveður á aðfangadag þetta árið. Útlit er fyrir allhvassan vind og dimm él á Suðurlandi.

Veðurfræðingur Veðurstofunnar sendi frá sér hugleiðingu um veðrið.

„Nú þegar þetta er skrifað er 960 mb lægð stödd 600 km vestur af Reykjanesi. Í nótt sendi þessi lægð meginskilakerfi sitt til norðausturs yfir landið. Í skilunum var suðaustan stormur með slyddu eða snjókomu, en fór yfir í rigningu við suður- og vesturströndina þegar hlýnaði. Handan skilanna er hægari suðvestanátt með skúrum og hita 2 til 7 stig. Nú kl. 6 hefur vindur snúist til suðvestanáttar í Keflavík og mun snúast annars staðar eftir því sem líður á morguninn og skilin færast til norðausturs.
Áðurnefnd lægð færist til norðausturs og nálgast þar með landið. Síðdegis bætir því aftur í vindinn og má búast við allhvössum vindi sunnantil, en hvassviðri eða stormi á Norðurlandi og Vestfjörðum. Það kólnar smám saman og útlit er fyrir slydduél eða él á vesturhelmingi landsins,“ segir í hugleiðingu veðurfræðings.

„Á aðfangadagskvöld er útlit fyrir suðvestan storm með dimmum éljum á sunnan- og vestanverðu landinu. Frystir á öllu landinu. Einnig er vert að nefna að horfur eru á að óveðrið á aðfangadagskvöld verði langvarandi og haldist áfram með litlum breytingum á jólanótt og á jóladag,“ tekur veðurfræðingur fram.

„Af ofansögðu er ljóst að það er líklegt að veðrið muni hafa áhrif á jólin á stórum hluta landsins þetta árið. Í hvössum vindi og éljum eru akstursskilyrði erfið og færð getur auðveldlega spillst, sér í lagi á tímum þegar snjómokstur er af skornum skammti,“ segir veðurfræðingur að lokum.

Nýjar fréttir