Aðventan er tími þar sem hátíð ljóssins er undirbúin. Alviðra er vestan við brúna yfir Sogið við Þrastarlund. Þar er aðventunni fagnað með göngu út í vetrarríkið og svo með söng, jólasögu og piparkökum í hlýjunni í gamla bænum.
„Alviðra er friðland, náttúruskóli og útivistarparadís. Á Alviðrujörðinni eru víða sjálfsprottin tré sem geta orðið glæsileg jólatré. Við leitum þeirra í göngunni, fellum þau og þátttakendur taka þau svo með heim til sín,“ segir í tilkynningu frá Alviðru.
Mæting er við gamla Alviðrubæinn kl. 13:00 laugardaginn 7. desember.
Eftir göngu verður boðið upp á heitt að drekka, piparkökur, jólasögu og söng í gamla bæjarhúsinu. Ef komist verður í stuð verður gengið í kringum jólatré!
„Tökum frá 7. desember (8. desember er til vara ef illviðri verður spáð á laugardeginum). Fylgist með á fésbókarsíðu Alviðru, fræðsluseturs Landverndar, hvort breyting verður á dagsetningu vegna veðurs. Verið velkomin í Alviðru!“