-7.2 C
Selfoss

Tendrað á trénu í Hveragerði

Vinsælast

Ljósin verða tendruð á jólatré Hveragerðisbæjar í Lystigarðinum Fossflöt á fyrsta sunnudegi í aðventu, þann 1. desember klukkan 17.

Barnakór kirkjunnar syngur, Pétur Georg Markan bæjarstjóri flytur ávarp og jólasveinarnir kíkja í heimsókn úr Reykjafjalli.

Skátafélagið Strókur býður upp á heitt kakó í skátaheimilinu að Breiðumörk 22 frá kl. 16 til upphitunar fyrir fjörið í Lystigarðinum.

Fólk er hvatt til að mæta og eiga saman skemmtilega stund í byrjun aðventu!

Nýjar fréttir