Um þessar mundir er verið að byggja við Hjúkrunar- og dvalarheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli. Viðbyggingin er um 1500 fermetrar og miðar verkinu vel eins og sjá má á myndinni hér að ofan.
Stefnt er að því að nýja álman verði tekin í notkun næsta vor. Hún rúmar tólf ný herbergi, nýjan matsal og bætta aðstöðu, bæði fyrir heimilismenn og starfsmenn.