Brautskráningu nýstúdenta í Fjölbrautaskóla Suðurlands sem fyrirhuguð var í desember hefur verið frestað fram yfir áramót vegna kennaraverkfallsins.
Soffía Sveinsdóttir, skólameistari, sendi nemendum skólans og forráðamönnum þeirra tölvupóst um erindið í gær.
Ekki er komin tímasetning á brautskráninguna eða búið að ákveða hvernig lokum haustannarinnar verði háttað. Soffía segist vera búin að teikna upp nokkrar tillögur að annarlokum en hún tekur ekki ákvörðun nema í samráði við aðra stjórnendur skólans og fleiri sem eru í verkfalli þegar verkfalli lýkur.
Verkfallið á að standa til 20. desember nema samið verði fyrir þann tíma.