![Ákveðið að byggja við leikskólann Álfheima á Selfossi Ákveðið að byggja við leikskólann Álfheima á Selfossi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/09/alfheimar.jpg?fit=390%2C253&ssl=1)
Starfshópur á vegum sveitarfélagsins Árborgar sem fjallaði um framtíðarhúsnæði leik- og grunnskóla hefur lagt til að næstu skref varðandi stækkun leikskóla verði að byggja við leikskólana Álfheima og Árbæ.
Byrjað verður á viðbyggingu við skólann, þar sem verða nýjar leikskóladeildir. Jafnframt því sem húsnæðið verður stækkað verður starfsmannaaðstöðu og eldhúsi breytt.