Kvenfélag Biskupstungna heldur árlegan jólamarkað sinn í Aratungu laugardaginn 30. nóvember kl. 13–16. Mikil spenna ríkir alltaf í kringum markaðinn og er hann stór hluti af fjáröflun kvenfélagsins en það sem safnast fer í góð málefni.
Á markaðnum er ávallt mikil jólastemning en á boðstólum verður fallegt handverk af ýmsum toga, matvörur úr héraði, jólavörur og ýmislegt annað spennandi. Einnig er hægt að setjast niður í notalegri kaffihúsastemningu og gæða sér á kræsingum af kökuhlaðborði kvenfélagskvenna auk þess að taka þátt í hlutaveltunni sem er alltaf stútfull af skemmtilegum vinningum, engin núll! Að þessu sinni er jólamarkaðurinn á kjördegi og því tilvalið að nýta kaffihlaðborðið sem kosningakaffi um leið og kosið er í Reykholtsskóla.
Enn eru nokkur söluborð eftir og hægt að tryggja sér borð hjá kvenfelagbiskupstungna@gmail.com eða í síma 699-1234 (Andrea).
Allir eru hjartanlega velkomnir.