10 C
Selfoss

Tryggjum nýliðun bændastéttarinnar

Samkvæmt Stjórnarráði Íslands þá á „Ríkissjóður Íslands á alls um 450 jarðir og þar af fara Ríkiseignir með daglega umsýslu um 315 jarða. Flestar jarðir í umsjón Ríkiseigna eru í ábúð en 122 ábúðarsamningar eru í gildi hjá Ríkiseignum vegna bújarða.”

Stóra spurningin er hvað verður um ríkisjarðirnar þegar bændur hætta búskap, þá venjulega vegna aldurs, veikinda eða breyttra aðstæðna? Venjan er að bóndinn selji landbúnaðartækin og allt sem snýr að rekstri búsins, öllum búfénaði er slátrað. Jörðinni er skilað inn til Ríkiseigna, bændum borgað út húsin á jörðinni og fyrir ræktunina. Þetta eru þung spor fyrir bændur sem hafa lagt líf sitt og sál við ræktun á góðum bústofni og ræktun landsins, sem jafnvel hefur byggst upp í áratugi og í gegnum nokkrar kynslóðir. Margir bændur eiga uppáhalds- og dekurdýr innan bústofnsins hvort sem það eru kýr, kindur eða hross. Eins og flestöllum starfstéttum þá þykir þeim vænt um og eru stoltir af æviverkum sínum. Eðli málsins samkvæmt fylgir sorg og þung spor fyrir bændur að sjá ævistarf þeirra líða undir lok með þessum hætti.

Þórdís Bjarnleifsdóttir.

Ríkiseignir torvelda nýliðun

Á þessum tímapunkti þá er engin starfsemi á jörðinni, þar sem áður var full starfsemi, hugsjón, metnaður og líf með gleði og sorgum. Jörðin er lögð í eyði, húsakostur án hita og viðhalds sem leiðir til íbúðarhúsnæðis og útihús verða skemmdum og niðurníðslu að bráð. Þetta er ákvörðun Ríkiseigna og er mikill skaði fyrir landbúnað og byggðir landsins.

Gefum ungum bændum tækifæri

Í stað þess að Ríkiseignir framleiði eyðijarðir með aðgerðarleysi, þá gætu Ríkiseignir auglýst eftir ábúanda sem ætlar að stunda búskap á jörðinni. Ábúandinn tæki þá við jörðinni í fullum rekstri með vélum, bústofni og ræktun. Slíkt fyrirkomulag er tilvalið tækifæri fyrir unga bændur að grípa sem tryggir nýliðun innan bændastéttarinnar. Að auki eru dæmi um að Ríkiseignir séu að koma í veg fyrir kynslóðaskipti á bújörðum með því að banna að byggja nýjar byggingar sem innihalda nútímabúskaparhætti, nema með því skilyrði að ríkið þurfi ekki að kaupa nýbyggingar þegar búskap er hætt á jörðinni. Það er óhætt að segja að Ríkiseignir standi í vegi fyrir nýliðun innan bændastéttarinnar. Ríkiseignir geta boðið bændum upp á hagstæð lán þegar þeir taka við ríkisjörðum í fullum rekstri, til að geta keypt vélar og bústofn sem fyrrum ábúandi hefur fjárfest í og ræktað í gegnum árin. Í stefnu Sósíalistaflokks Íslands í landbúnaðar- og matvælamálum segir: „Bæta skal kjör bænda og þeir viðurkenndir sem sá mikilvægi hluti framvarðarsveitar landsmanna sem þeir eru í raun svo tryggja megi fæðuöryggi og sjálfbærni. Þá séu nýsköpunarstyrkir til bænda auknir og einnig verði boðið upp á hagstæð lán til framkvæmda, nýsköpunar og nýliðunar.“

Er ekki kominn tími til að bændur kjósi nýjar áherslur fyrir velferð og framtíðarmöguleika landbúnaðarins? Nú er rétti tíminn til að kjósa Sósíalistaflokk Íslands með því að setja X við J.

Þórdís Bjarnleifsdóttir,

4. sæti Sósíalistaflokks í Suðurkjördæmi.

Nýjar fréttir