5.6 C
Selfoss

Víðir leiðir lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Vinsælast

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í gærkvöld. Fundurinn var haldinn í félagsheimilinu Stað á Eyrarbakka.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs hjá ríkislögreglustjóra, leiðir listann í Suðurkjördæmi. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, bæjarfulltrúi í Ölfusi og verkefnastjóri hjá Hörpu, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Sverrir Bergmann, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og söngvari. Fjórða sæti skipar svo Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi í Árborg og félagsráðgjafi.

„Þetta var frábær fundur á Eyrarbakka. Það er mikill hugur í Samfylkingarfólki á Suðurlandi. Við ætlum að keyra á samstöðu. Jákvæð og stórhuga stjórnmál eru sterkasta svarið við sundrungu og upphlaupum annarra flokka,“ segir Víðir Reynisson, oddviti Samfylkingar í Suðurkjördæmi.

„Nú leggjum við allt undir í kosningabaráttunni. Samfylkingin er til þjónustu reiðubúin, og ég ætla svo sannarlega að gefa allt mitt í verkefnið. Vonandi verður okkur treyst til verka – en við þurfum fyrst að bretta upp ermar og sækja sigurinn,“ segir Víðir að loknum fundi.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi:
1. Víðir Reynisson – yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs hjá ríkislögreglustjóra,
2. Ása Berglind Hjálmarsdóttir – bæjarfulltrúi í Ölfusi og verkefnastjóri hjá Hörpu,
3. Sverrir Bergmann Magnússon – söngvari og bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ,
4. Arna Ír Gunnarsdóttir – bæjarfulltrúi í Árborg og félagsráðgjafi,
5. Ólafur Þór Ólafsson – stjórnsýslufræðingur og fyrrum sveitarstjóri á Tálknafirði,
6. Arndís María Kjartansdóttir – kennari og fasteignasali í Vestmannaeyjum,
7. Hlynur Snær Vilhjálmsson – iðnaðarmaður og nemi,
8. Vala Ósk Ólafsdóttir – félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu,
9. Gunnar Karl Ólafsson – starfsmaður Bárunnar stéttarfélags,
10. Eyrún Fríða Árnadóttir – formaður bæjarráðs Hornafjarðar,
11. Renuka Charee Perera – vörukynningar hjá MS,
12. Óðinn Hilmarsson – húsasmíðameistari,
13. Borghildur Kristinsdóttir – bóndi,
14. Marta Sigurðardóttir – sérfræðingur hjá Isavia,
15. Gísli Matthías Auðunsson – veitingamaður,
16. Eggert Valur Guðmundsson – oddviti Rangárþings ytra,
17. Lína Björg Tryggvadóttir – byggðaþróunarfulltrúi Uppsveita Árnessýslu,
18. Friðjón Einarsson – fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ,
19. Margrét Frímannsdóttir – fyrrverandi alþingismaður,
20. Oddný G. Harðardóttir – alþingismaður

Nýjar fréttir