5.6 C
Selfoss

Lestrarbangsar fyrir 1. bekkinga í Þorlákshöfn

Vinsælast

Undanfarnar vikur hefur valhópur á unglingastigi í Grunnskólanum í Þorlákshöfn unnið að því að æfa samlestur og útbúa lestrarbangsa fyrir nemendur í 1. bekk.

Miðvikudaginn 23. október voru börnin sótt í Frístund og boðið á skólabókasafnið þar sem þau fengu lestrarbangsana afhenta. Farið var yfir hvað bangsarnir heita, hvenær þeir eiga afmæli og hvaða áskoranir þeir eru að fást við. Sumir bangsarnir eru til dæmis haldnir kvíða og aðrir myrkfælnir.

Bangsarnir eru með merkispjald með upplýsingum um sig og er því hægt að ræða heima þær áskoranir sem þeir glíma við. Þeir eiga það þó allir sameiginlegt að vilja ást og umhyggju og að fyrir þá sé lesið reglulega.

Nýjar fréttir