-6.1 C
Selfoss

Skeiða- og Gnúpverjahreppur sveitarfélag ársins 2024

Vinsælast

Kynning og verðlaunaafhending á sveitarfélagi ársins fóru fram á Hilton Nordica hótelinu 17. október síðastliðinn. Sveitarfélag ársins er samstarfsverkefni tíu stéttarfélaga bæjarstarfsmanna innan BSRB.

Veitt er viðurkenning fyrir bestu heildarniðurstöðu þátta sem stuðla að blómlegu og heilbrigðu starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga.

Sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur fékk hæstu einkunn í vali á sveitarfélögum sem hljóta nafnbótina Sveitarfélag ársins 2024 en sú útnefning var nú þriðja árið í röð. Fjögur sveitarfélög hlutu nafnbótina í ár og eru þessi: Skeiða- og Gnúpverjahreppur 4.448 stig, Sveitarfélagið Skagaströnd 4.397 stig, Bláskógabyggð 4.275 stig og Sveitarfélagið Vogar 4.142 stig.

Útnefningin er á grunni niðurstaðna viðhorfskönnunar félagsfólks 10 bæjarstarfsmannafélaga hjá sveitarfélögum á þeirra félagssvæðum og var könnunin gerð í samstarfi við Gallup. Þetta er þriðja árið í röð sem slík könnun er gerð og sem fyrr var þeim fjórum sveitarfélögum veitt viðurkenning sem skara fram úr. Svarendur í könnuninni hafa aldrei verið fleiri en nú eða ríflega 1900.

Tilgangurinn með könnuninni er að hvetja stjórnendur sveitarfélaga til að veita starfsumhverfi meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Markmiðið er einnig að niðurstöðurnar skapi almenna umræðu um starfsumhverfi og stjórnun á vinnustöðum, félagsfólki stéttarfélaganna til hagsbóta. Ekki síst er tilgangurinn að veita góðum vinnustöðum viðurkenningu fyrir að hlúa vel að starfsfólki.

Reiknuð var heildareinkunn út frá níu þáttum sem spurt var um í könnuninni en það eru stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd vinnustaðar, ánægja, stolt og jafnrétti. Þegar niðurstöður eru bornar saman við sambærilega könnun árið 2023 sést að allir þættirnir níu fengu betri einkunn í ár.

Skeiða- og Gnúpverjahreppur kom sem stormsveipur inn á listann í ár. Sveitarfélagið hefur ekki áður náð inn á lista fjögurra efstu í könnuninni en fór nú beint í efsta sæti stigalistans. Skeiða- og Gnúpverjahreppur var með hæstu einkunn allra sveitarfélaganna í sjö flokkum af níu sem spurt var um, þ.e. í flokkunum stjórnun, starfsandi, launakjör, sjálfstæði í starfi, ímynd sveitarfélags, ánægja og stolt og jafnrétti.

Nýjar fréttir