![Nýtt lið frá Árborg í Útsvari Nýtt lið frá Árborg í Útsvari](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/utsvar2016.jpg?fit=500%2C280&ssl=1)
Á heimasíðu Árborgar kemur fram að Sveitarfélagið Árborg muni taka þátt í spurningaleiknum Útsvari veturinn 2017-2018 sem fer fram á sjónvarpstöðinni RÚV. Þættirnir eru með nýjum stjórnendum og sama á við um lið Árborgar sem skartar þremur nýjum liðsmönnum. Þetta eru þau Sigurður Bogi Sævarsson, blaðamaður, Jakob Heimir Ingvarsson, nemi og Jóna Katrín Hilmarsdóttir, framhaldsskólakennari. Á Árborgar-síðunni segir að þau muni án ef standa sig vel fyrir hönd sveitarfélagsins í þessari skemmilegu keppni.
Fyrsta viðureignin þeirra fer fram föstudaginn 27. október nk. og eins og áður geta áhugasamir fengið að horfa á þáttinn í sjónvarpssal.