6.7 C
Selfoss

Fimleikadeild Selfoss á leið til Azerbaijan

Vinsælast

Átta iðkendur, þrír þjálfarar og einn dómari frá Fimleikadeild Selfoss leggja af stað á sunnudaginn til Baku í Azerbaijan en þar fer fram Evrópumót í hópfimleikum 16. – 19. október 2024.  Evrópumótið er aðeins haldið á tveggja ára fresti og er stærsta verkefni sem hópfimleikaiðkendum og þjálfurum býðst að taka þátt í með landsliðum Íslands.

Iðkendurnir keppa í fjórum af landsliðum Íslands, en í fullorðinsflokki keppir Karolína Helga Jóhannsdóttir með kvennaliði Íslands og Birta Sif Sævarsdóttir og Silvia Rós Nokkala Valdimarsdóttir keppa með blönduðu liði fullorðinna.

Í unglingaflokki keppa Elsa Karen Sigmundsdóttir, Kristín María Kristjánsdóttir, Magdalena Ósk Einarsdóttir og Victoria Ann Vokes með stúlknaliði Íslands og Katrín Drífa Magnúsdóttir keppir með blönduðu liði unglinga.

Þjálfarar sem koma frá Selfossi eru Aníta Þorgerður Tryggvadóttir, þjálfari drengjaliðs Íslands, Mads Pind og Tanja Birgisdóttir sem þjálfa stúlknalið Íslands. Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri deildarinnar, er einn af þremur dómurunum sem dæmir mótið fyrir Íslands hönd.

Ferðalagið verður langt en það tekur um sólarhring og samanstendur af þremur flugum hvora leið. Mánudagurinn kemur því til með að fara að miklu leyti í hvíld og endurheimt en á þriðjudaginn hefjast æfingar og á miðvikudag keppa unglingaliðin í undanúrslitum. Undanúrslit fullorðinsliðanna eru á fimmtudaginn, úrslit unglinga á föstudaginn og úrslit fullorðinsliðanna á laugardaginn, 19. október. Það verður því nóg að gera hjá öllum sem að verkefninu koma og virkilega viðburðaríkir dagar framundan.

„RÚV ætlar að sýna beint frá Evrópumótinu á laugardagsmorgninum 19. október og hvetjum við öll til þess að horfa, einnig má finna hlekk á aðra hluta mótsins á heimasíðunni okkar, www.umfs.is/fimleikar,“ segir í tilkynningu frá Fimleikadeild Selfoss.

Nýjar fréttir