5.6 C
Selfoss

Auka lestrarfærni barna með sumarlestri

Vinsælast

Síðustu þrettán ár hefur verið átaksverkefni í lestri í Þjórsárskóla þar sem markmiðið er að auka lestrarfærni og lestrargleði barna með því að hvetja þau til þess að lesa sem oftast heima yfir sumarið og þar með viðhalda þeim framförum sem þau hafa náð yfir veturinn. „Í ár var metþátttaka og er gaman að segja frá því að allir nemendur á yngsta stigi tóku þátt og margir af miðstigi,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Að hausti er veitt viðurkenning fyrir þátttöku í verkefninu. Þetta árið fengu nemendur verðlaunapening, bíómiða og viðurkenningarskjal.

Nýjar fréttir