6.7 C
Selfoss

KLAK- Icelandic Startups með kynningar á Suðurlandi

Vinsælast

Mánudaginn 30. september mun KLAK – Icelandic Startups vera með kynningarfundi á Suðurlandi þar sem verkefnin Startup Tourism og Gulleggið verða kynnt. Kynningin verður í Bankanum á Selfossi klukkan 12:00-13:00 og í Vík í Mýrdal klukkan 16:00-17:00 á Suður-Vík.

Startup Tourism er fimm vikna viðskiptahraðall sem hefur það markmið að hvetja til nýsköpunar og tæknivæðingar í ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring. Sérstök áhersla er lögð á að auðvelda aðilum af öllu landinu að taka þátt og kynningarferðin er einn liður í því. Hraðallinn samanstendur af fimm tveggja daga lotum sem ýmist fara fram á netinu eða í Grósku í Reykjavík en flug og gisting verða niðurgreidd fyrir þau teymi sem koma af landsbyggðinni.

Nýjar fréttir