5 C
Selfoss

Íþróttavika Evrópu hefst í dag

Vinsælast

Íþróttavika Evrópu hefst í dag en hún fer fram dagana 23. – 30. september ár hvert.

Markmiðið með þessari viku er að kynna íþróttir og almenna heilsu.

Í tilefni vikunnar verður ýmislegt í boði í Árborg. Hægt verður að prófa hina ýmsu hreyfingu og fara á fróðlega fræðslu sem snýr að heilsu okkar.

Fyrsti fyrirlesturinn fer fram í kvöld, mánudaginn 23. september,  þar sem dr. Erla Björnsdóttir mun fjalla um svefn og tengsl hans við næringu og hreyfingu.

Allir geta tekið þátt í þessari skemmtilegu viku sem framundan er en frítt er á alla viðburði vikunnar.

Dagskrá íþróttavikunnar.

Nýjar fréttir