10 C
Selfoss

Efla málþroska og læsi barna með nýjum verkefnapakka

Vinsælast

Orðalæsi er nýr rafrænn pakki, hugsaður fyrir talmeinafræðinga, kennara, sérkennara, þroskaþjálfa og foreldra í vinnu með börnum með málþroskavanda og börnum sem læra íslensku sem annað mál.

​Höfundar Orðalæsis eru talmeinafræðingarnir og Sunnlendingarnir Anna Berglind Svansdóttir og Álfhildur Þorsteinsdóttir. Upphaflega voru verkefnin gerð til eigin nota í talþjálfun með skjólstæðingum, þar sem mikil vöntun var á efni fyrir miðstig í grunnskóla og upp í framhaldsskóla. Þegar verkefnunum fjölgaði sáu höfundar að mögulega væri grundvöllur til að bjóða þau til sölu.

Orðalæsi er yfirgripsmikill verkefnabanki, hugsaður fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskóla. Um er að ræða 30 fjölbreytt verkefni ásamt 30 heimaverkefnum.

Markmið verkefnanna er að styðja við málþroska og læsi íslenskra barna og ungmenna sem eiga við vandamál að etja á því sviði. Hvert verkefni er u.þ.b. 40-80 mínútna langt.

Verkefnin eru mismunandi en öll eiga þau það sameiginlegt að heiti og upphaf verkefnanna vísar í lesskilningsverkefni úr Litabókunum á Skólavefnum. Þau eru útvíkkuð meðal annars með því að rýna í erfið orð og hugtök í textanum. Það er því kostur að vera með aðgang að Litabókunum af Skólavefnum en vel hægt að nýta verkefnið án þeirra.

Stærsti hluti verkefnisins inniheldur ýmis atriði sem efla málþroska og læsi, svo sem: frásagnarhæfni, sögugerð, orðaforða, orðaröð, setningagerðir, málfræði, orðtök, málshætti, ljóð, orðflokka, spurningar og ýmislegt fleira.

Hægt er að nálgast efnið hér.

Nýjar fréttir