Í upphafi þessa kjörtímabils setti meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar sér það markmið að gera Hveragerðisbæ að enn fjölskylduvænna samfélagi. Einn liður í því er að lækka álögur á barnafjölskyldur í bænum eins og tækifæri er til. Á þeim rúmlega tveimur árum sem liðin eru af þessu kjörtímabili hafa gjöld barnafjölskyldna fyrir þjónustu sem Hveragerðisbær veitir lækkað verulega. Fyrir vísitölufjölskyldu með eitt barn á leikskóla og eitt í grunnskóla má áætla að náðst hafi að létta byrðar þeirra um 200.000 kr. á ári frá árinu 2022.
Leikskólagjöld hafa lækkað um 30%
Strax eftir kosningar 2022 var samþykkt í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar að gera eina klukkustund á dag gjaldfrjálsa í öllum árgöngum í leikskólum bæjarins frá 1. september 2022, haustið 2023 var samþykkt að bæta við annarri klukkustund við og nú frá 1. september 2024 eru gjaldfrjálsar klukkustundir fyrir alla árganga í leikskólum bæjarins orðnar þrjár talsins. Frá sumrinu 2022 hafa leikskólagjöld fyrir átta tíma vistun farið úr kr. 29.256 í kr. 20.500 sem gerir 30% lækkun á tveimur árum. Ef við tökum hækkun verðlags á tímabilinu inn í reikninginn þá væri lækkunin um 38% á verðlagi dagsins í dag. Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar mun svo bæta enn í og í lok kjörtímabilsins verða gjaldfrjálsar klukkustundir á leikskólum Hveragerðisbæjar orðnar sex talsins. Hveragerðismódelið í leikskólamálum gengur út á að lækka gjöld barnafjölskyldna sem og að jafna stöðu þeirra svo að öll börn hafi tækifæri til að sækja fyrsta skólastigið.
Frístundastyrkur hefur hækkað um 46%
Í upphafi þessa kjörtímabils var frístundastyrkur Hveragerðisbæjar kr. 26.000. Árið 2023 var frístundastyrkurinn hækkaður í kr. 32.000 og var það fyrsta hækkunin í tvö ár. Í byrjun þessa árs fór hann í kr. 38.000 og hefur því hækkunin á þessu kjörtímabili numið 46%. Gert er ráð fyrir að í byrjun næsta árs verði frístundastyrkurinn orðinn kr. 44.000 og árið 2026 kr. 50.000. Frístundastyrkurinn í Hveragerði er fyrir öll börn í bænum frá 0-17 ára og er til þess að gefa öllum börnum tækifæri á að stunda fjölbreyttar frístundir eftir þeirra þörfum og áhuga.
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Í sumar samþykkti meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar að skólamáltíðir í grunnskólanum yrðu gjaldfrjálsar frá og með því skólaári sem nú er hafið. Ákvörðun um gjaldfrjálsar skólamáltíðir hjá öllum sveitarfélögum eru tilkomnar til að greiða fyrir langtímakjarasamningum á vinnumarkaði. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun úthluta árlegu framlagi úr ríkissjóði til sveitarfélaga sem bjóða öllum skólabörnum gjaldfrjálsar skólamáltíðir en sveitarfélögin sjálf munu svo jafnframt leggja sitt af mörkum í verkefnið. Á vormisseri 2024 var gjald fyrir hverja skólamáltíð kr. 500 fyrir hvert grunnskólabarn í Hveragerði. Á hverju skólaári eru 180 skóladagar og því var kostnaður fyrir hvert barn sem var alla skóladaga í skólamáltíð kr. 90.000 á ári. Þetta er kostnaður sem fjölskyldur grunnskólabarna í bænum þurfa því ekki lengur að standa straum af.
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, formaður bæjarráðs
Halldór Benjamín Hreinsson, forseti bæjarstjórnar
Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi
Njörður Sigurðsson, bæjarfulltrúi
Sandra Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi