9.5 C
Selfoss

Skeiða- og Gnúpverjahreppur leggur inn kæru

Vinsælast

Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur lagt inn kæru til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem farið er fram á að virkjunarleyfi sem Orkustofnun gaf út þann 12. ágúst fyrir 120 MW Búrfellslundi verði fellt úr gildi.

Að mati Skeiða- og Gnúpverjahrepps er málsmeðferðin á öllum stigum málsins ekki í samræmi við lög. Þar er átt við afgreiðslu Alþingis, málsmeðferð Skipulagsstofnunar ásamt umfjöllun Orkustofnunar áður en virkjanaleyfið var gefið út.

Eins og kemur fram í kærunni, þá hefur sveitarfélagið mótmælt fyrirhuguðum Búrfellslundi á öllum stigum í málsmeðferðinni frá því Alþingi tók ákvörðun um að setja Búrfellslund í nýtingarflokk í rammaáætlun í júní 2022.

Í tilkynningu frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi segir að mikilvægt sé að uppbygging orkumannvirkja sé unnin í sátt og samráði við nærsamfélagið og nauðsynlegt sé að klára stefnumörkun í vindorku ásamt tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga áður en fyrsta vindorkuverið verður byggt á Íslandi.

Nýjar fréttir