-10.3 C
Selfoss

Kynningarfundur POWERtalk haldinn 16. september

Vinsælast

Opinn kynningarfundur POWERtalk-deildarinnar verður haldinn 16. september kl. 20:00 til 22:00 í Selinu, Engjavegi 48, Selfossi. Öll velkomin án skuldbindingar og veitingar verða í kaffihléi.

POWERtalk-deildin Jóra á Selfossi er á sínu 32. starfsári og er hluti af landssamtökum POWERtalk. Hittingur er fyrsta og þriðja hvern mánudag kl. 20:00, oftast í Selinu, Engjavegi 48, Selfossi. Starfið stendur frá september fram í maí.

Á fundum hittast 10-15 félagar á öllum aldri, alls staðar af Suðurlandi og þjálfa hvert annað á jafningjagrunni í að standa upp og tala fyrir framan aðra. Í byrjun nægir sumum að standa upp og kynna sig með nafni, en þeir eflast með hverjum fundi og miklar framfarir sjást hjá öllum sem stunda POWERtalk. Birt er dagskrá fyrir hvern fund þar sem félagar fá verkefni eftir því sem hver og einn treystir sér til.

Æfing er meðal annars í ræðumennsku, fundarsköpum og tímastjórnun, að semja og flytja texta, lesa ljóð, fjalla um áhugaverð málefni, framkomu og líkamstjáningu. Einnig er æfing í því að tala blaðlaust og fara ekki yfir úthlutaðan tíma í dagskránni. Reynsla er fengin í að gegna embættum og stjórna fundum. En fyrst og fremst er haft gaman saman og unnið að því að auka sjálfstraust félaga til að segja það sem þeim býr í brjósti, hvar sem er og hvenær sem er. Starfið flokkast sem námskeið og flest stéttarfélög taka þátt í greiðslu árgjaldsins.

Hægt er að fylgjast með á Facebook síðunni POWERtalk-deildin Jóra, Selfossi. https://www.facebook.com/groups/134781690015291

POWERtalk-deildin Jóra

Nýjar fréttir