Lögreglan á Suðurlandi rannsakar slagsmál ungmenna sem fóru fram í gærkvöld við Ölfusárbrú á Selfossi. Talið er að hópur manna hafi ráðist að einum á meðan nokkrir fylgdust með. Er talið að árásin hafi verið skipulögð þar sem gerendur og áhorfendur voru grímuklæddir með hettur. Þeir flúðu vettvang áður en lögreglan kom á svæðið. Kemur þetta fram á íbúasíðunni Íbúar á Selfossi á Facebook.
Ekki tókst að hafa uppi á árásarmönnunum en fórnarlambið, ungur maður, þurfti að leita á sjúkrastofnun eftir árásina.