![Leikfélagi Austur-Eyfellinga veitt viðurkenning Leikfélagi Austur-Eyfellinga veitt viðurkenning](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/09/leikfelat_aust_eyfell.jpg?fit=463%2C291&ssl=1)
Leikfélag Austur-Eyfellinga hlaut nafnbótina Sveitarlistamaður Rangárþings eystra 2017. Leikfélagið hefur verið í fararbroddi í leiklistarstarfi sveitarfélagsins, sett um stórar sýningar, eins og Önnu frá Stóru Borg og Kardemommubæinn, ásamt því að vera leiðandi í leiklistarkennslu. Hjá félaginu er starfandi leikhópurinn Glætan þar sem grunnskólabörn koma saman, æfa og sýna leikrit.
Á Kjötsúpuhátíðinni 25. ágúst sl. þá afhenti Helga Guðrún Lárusdóttir verðlaunin fyrir hönd Menningarnefndar og við þeim tók Margrét Tryggvadóttir sem hefur unnið ötult starf í þágu leiklistar.