Sunnudaginn 28. júlí kl.14 verður útiguðsþjónusta í Arnarbæli í Ölfusi. Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna leiðir söng, organisti er Ester Ólafsdóttir og sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar. Að guðsþjónustu lokinni verður býður Kotstrandarsókn og kirkjukórinn í kirkjukaffi.
Arnarbæli er við ósa Ölfusár. Athugið breyttan Suðurlandsveg milli Hveragerðis og Selfoss, en leiðin er vel merkt. Kirkju er fyrst getið í Arnarbæli um 1200 og síðasta kirkja þar var ofan tekin 1909 þegar Arnarbælis- og Reykjasóknir voru sameinaðar og ný kirkja byggð á Kotströnd. Arnarbæli var prestssetur til 1942.
Ef veðrið bregst verður guðsþjónustan í Kotstrandarkirkju.