15.6 C
Selfoss

Ávöxtur friðar er okkar ljós

Vinsælast

Skálholtshátíð í 75 ár 1949 – 2024

Sjötíu og fimm ár eru frá fyrstu Skálholtshátíðinni sem haldin var eftir að Skálholtsfélagið var stofnað 1948. Yfirskrift hátíðarinnar er sótt í Efesusbréfið: „Hegðið ykkur því eins og börn ljóssins. Því að ávöxtur ljóssins er einskær góðvild, réttlæti og sannleikur.“ Sunnudaginn 21. júlí er hátíðarmessa kl. 14 og hátíðardagskrá á eftir í þeim fagra helgidómi sem Skálholtsdómkirkja er orðin eftir endurgerð. Hátíðarerindið flytur forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og er það meðal allra síðustu erinda sem hann flytur í embætti forseta Íslands. Þar flytur og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra, ávarp og tónlistaratriði á milli.

Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar stendur fyrir málþingi laugardaginn á Skálholtshátíð, kl. 10-12, en það er Þorláksmessa í sumar, 20. júlí. Dr. Munther Isaac, prestur lúthersku kirkjunnar í Betlehem, og dr. Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor við Williams-háskóla í Massachusetts í Bandaríkjunum, flytja aðalerindi málþingsins og Ólöf Ragnarsdóttir, fréttamaður RÚV, bregst við erindum þeirra. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna í Palestínu verður fyrirlestur dr. Munther Isaac á fjarfundi og sá hluti er á ensku.

Eftir hádegi, kl. 13, verður málstofa í kirkjunni helguð minningu um dr. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, og verður hún bæði minning um líf hans og verk og umfjöllun um list og trúartákn. Dr. Gunnlaugur A. Jónsson flytur erindi um Karl biskup og hjónin Leifur Breiðfjörð og Sigríður Jóhannsdóttir flytja erindi sem þau nefna „Litur ljóssins“.

Hátíðartónleikar verða á Þorláksmessu í sumar, 20. júlí, kl. 16 og er stjórnandi þeirra Jón Bjarnason, organisti. Hápunkturinn á hátíðartónleikunum er Kantata eftir Johann Sebastian Bach,Vergnügte Ruh, beliebte Seelenlust, BWV 170, sólókantata sem Sigríður Ósk Kristjánsdóttir flytur ásamt orgeli, óbói og strengjasveit. Auk þess verður fluttur orgelkonsert eftir Georg Friedrich Handel og Skálholtskórinn flytja verk eftir Antonio Lotti.

Auk Sigríðar Óskar Kristjánsdóttur eru helstu flytjendur Páll Palomares konsertmeistari, Matthías Birgir Nardeau óbóleikari og Skálholtskórinn.

Stofnun Skálholtsfélagsins markar án efa upphaf endurreisnar Skálholts með biskupssetri og dómkirkju. Á þessum tímamótum, þegar liðin eru 75 ár frá fyrstu Skálholtshátíðinni sem haldin var í gömlu sóknarkirkjunni 1949, verður flutt stutt ágrip af sögu Skálholtshátíðarinnar. Í ár verður greint frá uppbyggingu Gestastofunnar í Skálholti, endurreisn Bókhlöðu Skálholts og Prentsöguseturs Íslands, stofu Sigurbjörns Einarssonar og merkingu Þorláksleiðar.

Öll dagskrá Skálholtshátíðar er öllum opin án endurgjalds enda hafa allir þættir hennar þegar verið kostaðir. Hefst hún með útimessu við Þorlákssæti kl. 9 árdegis á Þorláksmessunni og verður gengið saman þangað af kirkjutröppunum. Sungin er tíðargjörð í kirkjunni kl. 9 á morgnanna, nema þegar útimessan er, og kl. 18. Hópur pílagríma gengur til messu og hefst messan með móttöku þeirra. Pílagrímagangan er að þessu sinni allar götur frá Reynivöllum í Kjós og hefst ganga hvers dags kl. 9, frá Reynivöllum, undir leiðsögn sr. Örnu Grétarsdóttur, frá Stíflisdal, frá Þingvallakirkju og loks frá afleggjaranum að Neðra Apavatni.

Í hátíðarmessu sunnudagsins 21. júlí kl. 14 mun sr. Kristján Björnsson vígslubiskup prédika og þjóna fyrir altari ásamt frú Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi Íslands, sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur, verðandi biskupi Íslands, sr. Guðlaugu Helgu Guðlaugsdóttur, presti í Mosfellsprestakalli, sr. Axel Á. Njarðvík, settum sóknarpresti, og Bergþóru Ragnardóttur djákna, en lesarar eru Erlendur Hjaltason, formaður Skálholtsfélagsins hins nýja, og Bogi Ágústsson, formaður Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar. Skálholtskórinn syngur og organisti og stjórnandi er Jón Bjarnason. Trompetleikarar eru Jóhann I. Stefánsson og Vilhjálmur Ingi Sigurðarson.

Nýjar fréttir