-8.1 C
Selfoss

Marín Hergils og David Clausen grillmeistarar Kótelettunnar

Vinsælast

Grill- og tónlistarhátíðin Kótelettan fór fram á Selfossi um helgina en þar voru komnir allir helstu grillsérfræðingar á Íslandi, bæði í fagmanna- og áhugamannaflokki. Það ætti ekki að hafa komið neinum á óvart því þar fór fram keppnin um „grillpylsu ársins” sem er mjög vinsæl keppni enda landsmenn sólgnir í grillaðar pylsur. Í ár var ekkert gefið eftir og dómnefndin átti fullt í fangi með verkefnið sitt. Þá er ekki allt um talið því á hátíðinni voru öll stærstu grillmerki landsins með sýningarbása og allir helstu kjötframleiðendur kepptust við að fanga bragðlauka gesta og gangandi.

Grillmeistarar krýndir

Í keppninni um „Grillmeistarann“ var það Marín Hergils Valdimarsdóttir sem sigraði í flokki áhugamanna en í flokki fagmanna var það David Clausen Pétursson sem sigraði og það í annað árið í röð. Hvort um sig hlaut ostakörfu frá MS, grill og kol frá Weber, gjafapoka frá BBQ Kónginum og gjafabréf frá Sælkerabúðinni. Í keppni framleiðenda um titilinn „Grillpylsa ársins“ var það Ali sem bar sigur úr bítum.

Dómnefnd fagfólks átti fullt í fangi

Dómnefndin í ár var ekki skipuð neinum byrjendum en það voru þau: Inga Katrín Guðmundsdóttir, betur þekkt sem grilldrottningin. Þá var það BBQ-kóngurinnn, Alfreð Fannar Björnsson, sem var jafnframt formaður dómnefndar. Ívar Örn Hansen, sem við þekkjum sem Helvítis kokkinn á Stöð 2, og Jóhann Sveinsson var fulltrúi Íslenska kokkalandsliðsins í ár.

Grillað fyrir góðan málstað

Kótelettan og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna voru svo með sína árlegu sölu á kótelettum á hátíðinni. Söfnunin var haldin í samstarfi við Kjötbankann, Ali matvörur, Kjarnafæði, SS og Stjörnugrís. Steindi og Auddi voru meðal þeirra sem rifu í grillspaðana og létu gott af sér og frá sér leiða. Kótelettan og samstarfsaðilar hennar eru með þessu árlega verkefni sínu einn stærsti stuðningsaðili Styrktarfélagsins á Íslandi.

Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.
Ljósmynd: Kótelettan/Mummi Lú.

Nýjar fréttir