9.5 C
Selfoss

Loftbelgsferðir og flugveisla á Hellu

Vinsælast

Flughátíðin „Allt sem flýgur“ hefur verið haldin á Helluflugvelli um árabil og er alltaf vel sótt.

Hátíðin fer fram 12.–14. júlí í ár auk þess sem 9.–12. júlí fer fram Íslandsmótið í vélflugi 2024. Loftbelgur verður einnig á svæðinu alla vikuna og geta áhugasamir skráð sig hér og komist þannig á biðlista til að komast í flugferð.

Á hátíðinni gefst gestum færi á að kynnast fluginu með einstökum hætti. Flugsýningar eru frá morgni til kvölds, gestir geta skoðað vélarnar, setið við flugbrautina og notið flugveislunnar alla helgina. Karamellukast úr flugvél verður á laugardeginum fyrir krakkana og gestgjafarnir bjóða svo til kvöldvöku í flugskýlinu um kvöldið.

Ekkert kostar inn og öll velkomin!

Nýjar fréttir