1 C
Selfoss

Hálendisvaktin kom fótbrotnum göngumanni til bjargar

Vinsælast

Í gær barst Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Landmannalaugum útkall vegna göngumanns sem hafði dottið á Bláhnjúk skammt sunnan Landmannalauga.

Þegar hópurinn kom að var ljóst að erfitt yrði að bera viðkomandi frá slysstað vegna aðstæðna, en þarna er bratt og algengt að göngufólk slasi sig á þessum slóðum. Yfir úfið hraun er að fara og ljóst að flutningur myndi reyna óþarflega mikið á sjúklinginn.

Búið var um hinn slasaða á börum en í hóp Hálendisvaktar eru tveir sjúkraflutningamenn og í gönguhópnum var einnig læknir. Óskað var eftir því við Neyðarlínuna að þyrla yrði boðuð á staðinn til að flytja hinn slasaða af vettvangi.

Á meðan þyrla var á leið á vettvang þurfti hins vegar að flytja þann slasaða í börum úr mesta brattlendinu niður á stað sem þyrlan gæti lent. Björgunarfólk setti upp tryggingar og flutti sjúklinginn niður á áreyrar þarna nærri þar sem þyrlan svo lenti, sjúklingur borinn um borð og fluttur til aðhlynningar.

Meðfylgjandi eru ljósmyndir frá aðgerðum í gær.

Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Mynd: Slysavarnafélagið Landsbjörg.

Nýjar fréttir