11.7 C
Selfoss

Fræðslunetið á faraldsfæti

Vinsælast

Á starfsdegi Fræðslunetsins þetta vorið var ákveðið að heimsækja fræðsluaðila í Reykjavík til að kynnast starfsemi þeirra og ýmsum nýjungum í starfinu. Fyrst var farið í Iðuna fræðslusetur þar sem kynnt var rafræn skráning á raunfærnimati. Verkefni sem hefur verið í þróun í nokkur undanfarin ár og verður vonandi brátt lokið við, þannig að öll skráing raunfærnimats verði rafræn. Iðan er fræðslusetur iðngreina og þar er framkvæmt raunfærnimat í iðngreinum.  Víst er að aðrar símenntunarmiðstöðvar bíða spenntar eftir því að þessu verkefni verði lokið svo þær geti nýtt þessa tækni við skráningu raunfærnimats. 

Næst lá leiðin í Endurmenntun Háskóla Íslands þar sem starfsemi þess var kynnt og einnig helstu nýjungar sem blasa við á næstunni. Starfsemi endurmenntunar er afar öflug og viðamikil.

Mímir símenntun var að lokum heimsótt. Þar var farið yfir ýmsa þætti starfseminnar sem er á margan hátt sambærileg við starfsemi Fræðslunetsins. Mímir sér einnig um ríkisborgarpróf og annast einnig prófaþjónustu fyrir háskóla á landsbyggðinni líkt og Háskólafélag Suðurlands gerir á okkar svæði. 

Starfsfólk Fræðslunetsins fékk afskaplega góðar og hlýlegar móttökur og ekki má gleyma höfðinglegum veitingum. Það er alltaf fróðlegt og skemmtilegt að heimsækja stofnanir sem starfa í sama geira, kynnast bæði starfsemi þeirra og starfsfólki. 
Starfsfólk Fræðslunetsins þakkar kærlega fyrir sig

Nýjar fréttir