11.7 C
Selfoss

Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður

Vinsælast

Undanfarna mánuði hafa Samkaup hf. og Skel fjárfestingafélag hf. átt í könnunarviðræðum um fýsileika samruna Samkaupa og tiltekinna dótturfélaga SKEL. Aðilar hafa framkvæmt forskoðun á samrunafélögunum með aðstoð sérfræðiráðgjafar og í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.

Skrifað hefur verið undir samkomulag um helstu forsendur fyrir því að hefja formlegt samrunaferli, þar sem Samkaup verður yfirtökufélagið. Nú hefjast því samningaviðræður um samrunann með það að markmiði að komast að samkomulagi um efni endanlegs kaupsamnings með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og hluthafafundar.

Samruninn er í samræmi við framtíðarstefnu Samkaupa og felur í sér margvísleg tækifæri og breikkar tekjugrunn félagsins.

„Samkaup er yfirtökufélag í þessum samruna og ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu eftir vinnu síðustu missera. Ég er sannfærður um að sameinað félag eigi eftir að gera góða hluti til hagsbóta fyrir neytendur. Með sameiningu verður til fjárhagslega öflugt verslunarfélag á neytendamarkaði með sterka markaðshlutdeild í dagvöru, lyfjum og orku. Sameinað félag er með djúpar rætur í þjónustu við viðskiptavini um allt land og verður enn sterkari keppinautur á markaði með mikil tækifæri til vaxtar. Aukin hagkvæmni hlýst af stærri rekstrareiningu en einnig eru mikil tækifæri víða um land með auknu þjónustuframboði,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forsjóri Samkaupa.

Nýjar fréttir