11.7 C
Selfoss

Nemendur skoruðu á kennara í lúftgítarkeppni

Vinsælast

Nokkrir drengir í Laugalandsskóla skoruðu á kennara í lúftgítarkeppni sem haldin var fimmtudaginn 16. maí og voru nemendur skólans í dómarasæti. Bæring Jón sá um að kynna keppendur til leiks en það voru þau Einar, Ragna, Sóley, Erla Berglind og Helga Sunna sem kepptu á móti þeim Degi, Sveini, Steindóri, Antoni og Grétari. Búið var að velja fimmlagabúta sem keppendur áttu nota til að sýna listir sínar og það gerðu þeir svo sannarlega, það var varla hægt að sjá að um áhugafólk væri að ræða. Metnaðurinn var svo mikill að það lá við slysi í eitt skiptið. Allt fór þetta samt fram í mesta bróðerni og verður vonandi að föstum lið hjá okkur.

Myndirnar sýna betur hvað það gekk mikið á, þetta var líklega einn af skemmtilegri matartímum í sögu skólans.

Það voru nemendur sem unnu heiðurinn að þessu sinni, en það er alls ekki víst að það gerist oftar.

Laugalandsskóli

Nýjar fréttir