Björt Ólafsdóttir ráðherra í umhverfis- og auðlindaráðuneytið hélt fund ásamt starfsmönnum ráðuneytisins með sveitarstjórnarmönnum í Miðgarði á Hvolsvelli í byrjun vikunnar. Þar kynnti hún m.a. hugmyndir um Miðhálendisþjóðgarð og vinnu sem fram hefur farið af hálfu ráðuneytisins. Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að fundurinn hafi verið fróðlegur og góður. Þar segir að skoðanir séu skiptar en fundir sem þessir séu afar mikilvægir.
Umhverfisráðherra fundaði með sveitarstjórn á Hvolsvelli
![bjort_hvolsvelli](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/bjort_hvolsvelli.jpg?resize=640%2C442&ssl=1)