Laugardaginn 6.apríl sigraði Védís Huld Sigurðrdóttir úr hestamannafélaginu Sleipni Meistaradeild ungmenna sem haldin var á í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli.
Á síðasta mótinu var keppt í tölti T1 og 100 m skeiði.
Védís Huld keppti á hestinum Ísak frá Þjórsárbakka en þau stóðu efst eftir forkeppni með 7,43 í einkunn og sigruðu þau æsispennandi úrslitin með 7,94 í aðaleinkunn.
Þar með sigraði Védís Huld einstaklingskeppnina með 40 stig en á eftir henni voru Matthías Sigurðsson með 39 stig – æsispennandi keppni fram á síðustu stundu.
Hestamannafélagið Sleipnir