Glatt var á hjalla föstudaginn 22. mars þegar Arion banki flutti útibú sitt í Vík í Mýrdal í nýtt og glæsilegt húsnæði að Sléttuvegi 2.
Boðið var upp á kaffi og kleinur í tilefni opnunarinnar og lögðu fjölmargir íbúar í Vík, viðskiptavinir bankans og núverandi jafnt sem fyrrum starfsfólk, leið sína í útibúið af því tilefni.
Arion banki býður upp á sömu þjónustu og áður í nýja húsnæðinu og opnunartími útibúsins verður einnig sá sami eða alla virka daga frá kl. 12:00-15:30.
Þjónusturáðgjafar útibúsins í Vík, Guðlaug Lilja og Hrund ásamt Rakel Dögg Svæðisstjóra einstaklinga á Suðurlandi
Þórir Kjartansson íbúi í Vík, Rakel Dögg (Svæðisstjóri einstaklinga á Suðurlandi)
Rakel Dögg (Svæðisstjóri einstaklinga á Suðurlandi), Guðrún Svana Sigurjónsdóttir íbúi í Vík
Guðfinna (Rekstrarstjóri Arion banka) ásamt Ívari Pál Bjartmarssyni Slökkviliðsstjóra í Vík
María Birgisdóttir ásamt Svanhvíti Sveinsdóttir (Naní) fyrrverandi stafsmanni Arion banka til fjölda ára.
Sigurður Ævar íbúi í Vík ásamt Svanhvíti (Naní) og Helgu Elsu sem störfuðu eitt sinn hjá Arion banka.