Bikar- og deildarmeistarar Hamars í blaki karla unnu öruggan sigur á Stál-Úlfi í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Unbroken-deildarinnar miðvikudaginn 3. apríl.
Hamarsmenn mættu ákveðnir til leiks og var sigur þeirra aldrei í hættu. Hrinurnar fóru 25-10, 25-11 og 25-19 og öruggur 3-0 sigur.
Liðin mætast aftur á laugardaginn í Fagralundi en vinna þarf 2 leiki til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.
Hamarsmenn fengu deildarmeistarabikarinn afhentan í lok leiks auk þess sem Hamarsmenn í liði ársins fengu sínar viðurkenningar.
Hamarsmenn í liði ársins voru eftirfarandi:
Damian Sapor: Uppspilari
Austris Bukovskis: Frelsingi
Tomek Leik: Kantur og besti erlendi leikmaður
Hafsteinn Valdimarsson: Miðja
Auk þess tóku Valdimar Hafsteinsson og Bryndís Sigurðardóttir við viðurkenningu fyrir hönd Hamars fyrir bestu umgjörðina í Unbroken deildinni í vetur.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2024/04/IMG_7707-scaled.jpg?resize=696%2C545&ssl=1)
![Valdimar Hafsteinsson og Bryndís Sigurðardóttir taka við viðurkenningunni fyrir hönd Hamars. Mynd: Hamar](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2024/04/Hamar-blak-–-Valdimar-og-Bryndis-scaled.jpg?resize=696%2C531&ssl=1)