Ný og glæsileg Kr. verslun var opnuð í Vík í Mýrdal í síðustu viku. Verslunin, sem tók við af Kjarvals-verslun sem þar var fyrir og er í eigu Festis, er í nýrri 3.800 m² verslanamiðstöð. Stafirnir Kr. standa fyrir Krónan en verslunin er í raun smærri útgáfa af Krónuverslun.
Í nýju Kr. versluninni í Vík er boðið upp á aukið vöruúrval og um 2.000 vörutegundir eru á sama verði og í Krónunni, þannig að um töluverða lækkun vöruverðs er að ræða. Ferðamönnum hefur fjölgað mikið í Vík undanfarið og náði verslunin sem fyrir var engan veginn að anna eftirspurn.
Til stendur að breyta Kjarvalsbúðunum í Þorlákshöfn, á Hellu, Hvolsvelli og Kirkjubæjarklaustri í Kr. verslanir á næstunni.