Friðborg Hauksdóttir er sunnlenski matgæðingur vikunnar.
Takk fyrir áskorunina sonur sæll.
Þessi ofur einfaldi kjúklingaréttur slær í gegn í hvert skipti og hefur hann verið oft í kvöldmatinn á mínu heimili í mörg, mörg ár og klikkar bara ekki.
Kjúklingaréttur í piparostasósu:
- 4-5 kjúklingabringur
- 500 ml rjómi
- 1 stk. piparostur
- 5 stk. hvítlauksrif
- 1 krukka rautt pestó
- Tabasco-sósa
- Soya-sósa
Byrjað er að steikja bringurnar á pönnu á hvorri hlið og settar í eldfast mót. Því næst er hvítlaukurinn léttsteiktur upp úr smjöri og svo bætt rjóma og piparostinum út á pönnuna og leyft ostinum að bráðna. Þegar osturinn byrjar að bráðna er bætt við pestóinu, Tabasco- og soyasósu eftir smekk. Þegar svo osturinn hefur bráðnað og allt blandast vel á pönnunni er sósunni helt yfir kjúklingabringurnar í eldfasta mótinu og sett inn í ofn í hálftíma á 180° eða þar til bringurnar eru fulleldaðar.
Gott er að hafa hvítlauksbrauð, hrísgrjón og salat með.
Ég ætla að skora á listakokkinn Jennýju Kjartansdóttur til að deila matreiðslu hæfileikum sínum með öllu suðvesturkjördæmi.