9.5 C
Selfoss

Vilja byggja 16-20 íbúða fjölbýlishús

Vinsælast

Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps undirritaði, fyrir hönd sveitarfélagsins viljayfirlýsingu um fjölgun íbúða í Vík síðasta föstudag.

Verkefnið felst í byggingu 16-20 íbúða fjölbýlishúss þar sem Brák leigufélag mun kaupa á bilinu 10-12 íbúðir með stofnframlögum frá ríki og sveitarfélagi.

Yfirlýsingin er undirrituð af fulltrúum Mýrdalshrepps, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) og byggingaraðilans SV3 ehf., en ákveðið var að ganga til samninga við fyrirtækið í kjölfar þess að auglýst var eftir áhugasömum byggingaraðilum í desember sl.

Verkefnið er unnið á grundvelli samnings sem sveitarfélagið og innviðaráðuneytið samþykktu í nóvember 2023 um íbúðauppbyggingu til næstu 10 ára og er í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins.

Vonir standa til þess að framkvæmdir geti hafist um mitt ár 2024 og að þeim verði lokið um mitt ár 2025.

Nýjar fréttir